Skilmálar
Almennt
Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru, setur í körfu og velur greiðslufyrirkomulag. Síðan er pöntunin afgreidd. Í kjölfar greiðslu færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur. Sé vara uppseld verður haft samband við þig við fyrsta hentugleika og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. Við áskiljum okkur rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er rangt verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Snjallar.is samþykkir og viðurkennir kaupandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa. Snjallar.is áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Flix ehf., kt. 5303180870, vsk nr. 130960
Verð og greiðslumöguleikar
Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar. Snjallar.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði teyja, netgíró, pei, inneign eða apple pay.
Sendingarmáti
Allar vörur hjá okkur eru afgreiddar samdægurs ef pöntun berst fyrir kl. 12:00 virka daga. Ef pantað er eftir þann tíma, um helgi eða á hátíðardegi er pöntunin afgreidd næsta virka dag.
Vörur eru sendar með Póstinum og fara verð á sendingum eftir gildandi verðskrá þeirra hverju sinni. Þar gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar póstsins um afhendingu vörunnar.
Snjallar.is tekur ekki ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið póstlagðar.
Sendingartími er 2-4 virkir dagar að jafnaði. Sendingar geta tekið fleiri daga ef eitthvað kemur upp á.
Ef þú velur að sækja á lager sendum við þér tilkynningu um leið og varan er tilbúin til afhendingar, oftast samdægurs eða næsta virka dag.
Snjallar.is tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun pósturinn senda pöntunina til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.
Mögulegt er að fá vörur sendar á annað heimilisfang en kaupandans. Um afhendingu vörunnar gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins og Dropp.
Ef senda á vöruna erlendis þá greiðir kaupandi sendingarkostnað. Tollafgreiðsla vörunnar erlendis er á ábyrgð kaupanda.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla.
Ef vörur hafa ekki borist kaupanda innan gefins tímaramma er viðskiptavinum bent á að hafa samband við netverslun Snjallar.is í þjónustuver eða https://snjallar.is/pages/contact
Eignarréttarfyrirvari
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.
Trúnaður
Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Lagaákvæði
Um skilmála þessa gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt.
Ágreiningur
Rísi ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Varnarþing
Viðskipti við RawForce.is er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Nánari upplýsingar
Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að ábendingum eða kvörtunum, sendu okkur þá fyrirspurn á þjónustuverð okkar eða https://snjallar.is/pages/contact og við svörum þér eins fljótt og auðið er.